30.3.07

Lítil frænka fædd á Akureyri!!


Það var að fæðast lítil snúlla hjá henni Dísu systir! Hún er 16 merkur og 50 cm og fæddist klukkan 14 í dag. Innilega til hamingju Dísa, Nonni, Veigar, Jonni og Orri. Haldið þið ekki að daman eigi eftir að verða vel pössuð af þremur bræðrum???


Sú stutta á afmælisdag með ekki ómerkari einstaklingum en t.d:




  • Norah Jones


  • Celine Dion


  • M.C. Hammer


  • Eric Clapton


  • Warren Beatty og


  • Vincent Van Gogh

Ég get ekki beðið eftir að fá að sjá hana :)


21.3.07

Farin í helgarferð



Ég er farin til Madríd í langa helgarferð og kem aftur á sunnudagskvöldið.






Bless elskurnar og öfundið mig bara..... :)

13.3.07

Unglingar á öllum aldri

Á mínu heimili eru þrír unglingar. Litli unglingurinn sem er rétt að byrja það skeið, stóri unglingurinn sem er í raun voða smá og svo mömmu unglingurinn sem neitar að verða fullorðin :)
Það er því rétt hægt að ímynda sér stuðið þegar þetta blandast saman. Stundum reyna litli og stóri unglingurinn að segja mömmu unglingnum að hún sé svoooo gömul! Yea right...! Glætan að mömmu unglingurinn trúi því, alltaf jafn mikill krakki í sér! Ef mömmu unglingurinn kannast ekki við einhverja hljómsveit þá segir litli unglingurinn að það sé bara af því hún sé svo gömul og þegar mömmu unglingurinn fór að tala um það um daginn að hún hefði verið að "e-meilast" við vinkonu sína þá sagði stóri unglingurinn að þetta gamla fólk væri svo húkt á e-meili!!! Ég bara skil þetta ekki, ég sem eldist hreinlega ekki neitt!!!!

Hvað um það, mömmu unglingurinn datt í það á laugardagskvöldið. Það kom að því að mér tækist það. Hef ekki slept takinu svo svakalega lengi, líklega ekki síðan á landsmóti í fyrra!!!
Það voru tónleikar og partý hjá Óskabörnum Óðins og það var að sjálfsögðu alveg dásamlegt eins og von var á. Hitti þar allt skemmtilega fólkið og skemmti mér þ.a.l. alveg prýðilega. Við Captain Morgan, félagi minn vorum dús alveg þangað til á sunnudagsmorguninn þá ákvað hann að bregðast því trausti sem ég hafði sett á hann. Þannig að sunnudagurinn og mánudagurinn voru pínu erfiðir svona magalega séð.
En hvað um það, kvöldið var gott :)

Heyrumst síðar.....

5.3.07

Lítill köttur-stór markmið!

Vatnið í hundadallinum er miklu betra en í kattadallinum :)

Heitir þetta ekki að vera lítill kisi með mikilmennskubrjálæði???