26.11.07

Síðasta hjólaferð "sumarsins"!

Brrrr, brrrr, ég fór á hjólinu í Þykkvabæinn á laugardaginn. Jú jú, það var 7 - 10°C frost á leiðinni (fyrir utan vindkælingu) og smá hálkublettir á heiðinni en Gore-texið sannaði sig sko rækilega. Puttarnir voru svona á köflum í smá kal hættu en þá rifjaði ég bara upp nokkrar fingraæfingar frá því í píanótímunum í gamla daga og fékk blóðið aftur á hreyfingu.
Ástæðan fyrir þessari hjólaferð var sú að ég er með vetrargeymslu fyrir hjólið í Oddsparti og það var virkilega farið að láta á sjá að standa hérna fyrir utan í allt haust. Ég beit það svo í mig í veðurblíðunni á laugardaginn að þetta væri dagurinn til verksins og þá var ekki aftur snúið. Var að vísu fram eftir degi að reyna að fá mig ofan af þessari vitleysu en það tókst ekki þrátt fyrir miklar rökræður við sjálfa mig. Það varð þó til þess að það var komið myrkur þegar ég loks lagði af stað.

Ef hjólið hefði getað talað þá hefði það snúið framendanum að mér þar sem ég var að reyna að starta því og sagt: "ert'ekki að grínast? ætlastu til þess að ég hreyfi mig í þessu frosti??? Veistu ekki hvaða árstíð er þú crazy kelling??!!!" Það fór nú samt í gang gamla greyið því ég var þrjóskari (no surprize þar!) en dempararnir voru freðnir, svampurinn í sætinu var freðinn, bensínlokið var freðið og þegar ég ætlaði að skipta yfir í háu ljósin upp við Rauðavatn þá var takkinn gaddfreðinn! En allt vill lagið hafa og í Þykkvabæinn komumst við súkka gamla heilu og höldnu beint í veislumat hjá Dagrúnu. Og vitið þið bara að ég var ekkert gaddfreðin, hef meira að segja orðið mun kaldara þegar ég var í leðrinu í roki og rigningu og 5 stiga hita! :)

Laugardagskvöldið var svo dásamlegt. Það var alveg kominn tími á stelpu-/rauðvíns-/ kjaftakvöld hjá okkur tveimur og stóðum við okkur vel í þessum þremur þáttum. kjöftuðum og drukkum rauðvín fram á rauða nótt. Dásemd- dásemd....

Kveðja frá hörku-biker kvendinu ;)

7 Comments:

Blogger Meðalmaðurinn said...

Já fingraæfingarnar standa fyrir sínu þegar mest á reynir! Árin hjá Ellu hafa semsagt loksins komið að notum...

26 nóvember, 2007 23:01  
Anonymous Nafnlaus said...

Anna mín.. það var nú pláss fyrir hjólið í bílskúr í mosó ; ) hefðir ekki þurft að leggja þetta á hjólið...
en mikið svakalega öfunda ég þig að vera svona hörkukerlin að hjóla í frosti .. ég neita að fara út nema sé í það minnsta hiti úti ekki - gráða ; )

27 nóvember, 2007 09:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er kúl að vera hlýtt .....leður my ass:)

Gott að græjan er komin í hús:)

Heyrðu. . . bréfið þitt varðandi jólaballið er tekið til greina :)

Kveðja Inda

27 nóvember, 2007 14:08  
Anonymous Nafnlaus said...

Leður minn rass ;( skællllllllll

27 nóvember, 2007 15:57  
Anonymous Nafnlaus said...

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1306232

Hey Anna Málfríður, núna er loksins komið hjólaveður fyrir þig á heiðinni

30 nóvember, 2007 10:25  
Blogger Anna Malfridur said...

He he já ég er farin af stað, med de samme... :)

30 nóvember, 2007 10:48  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahaha þetta minnir mig á ferðina á árshátíð og aðalfund Snigla '88 eða '89 ég man ekki hvort árið.
Það var á Hótel Örk og það voru 3 metra háir snjóruðningar sitt hvoru megin við veginn á heiðinni. Við gjörsamlega frusum í hel á hjólunum.

03 desember, 2007 00:19  

Skrifa ummæli

<< Home