22.11.07

Ég er EKKI dramadrottning - surprize-surprize!!



Þú ert vel steikt dramadrottning.




Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust
"rare",
"medium rare",
"medium" og
"well done" værir þú "well done". Jafnvel svo vel steikt að erfitt væri að sjá muninn á þér og skósóla. En velsteikta dramadrottningin kærir sig ekki um óvæntar uppákomur eins og matareitrun. Hún vill að hlutirnir séu fyrirsjáanlegir og skipulagðir. Hún bleytir því einfaldlega upp í þurrum borgaranum með fullt af kokteilsósu.



Miklir leiðtogahæfileikar búa í vel steiktu dramadrottningunni. Hún er mjög yfirveguð og rökföst en einnig þrjósk.



Í raun verður nánast aldrei dramatískra eiginleika vart í fari vel steiktu dramadrottningarinnar. Ætli þeir hafi ekki drepist við steikingu. Það er þó tvennt sem getur komið hinni vel steiktu úr jafnvægi. Annars vegar hrár fiskur. Hins vegar þátturinn Frægir í form. Hún er enn að leita að fræga fólkinu í þættinum.


Hversu mikil dramadrottning ert þú?

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ha, ha. Ég er líka skósóli/well done. Sjúkk, hefði ekki alveg höndlað það hefði útkoman verið að ég væri dramadrotting.

27 nóvember, 2007 13:34  
Blogger Anna Malfridur said...

Nákvæmlega!! Ég hefði þurft að endurskoða alla mína tilveru ef útkoman hefði verið í þá áttina :)

28 nóvember, 2007 10:23  

Skrifa ummæli

<< Home