10.11.08

Spurning um að fara að endurskoða...

... lífið???
Verð að deila með ykkur grátbroslegri sögu.
Hildur kom, eins og oft um helgar, uppí til mín á laugardagsmorguninn til að kúra aðeins. Þar sem við vorum að spjalla þá ætlaði hún eitthvað að snerta andlitið á mér, bursta í burtu kusk eða eitthvað svoleiðis, svo ég mynnti hana á að ég þoli ekki að andlitið á mér sé snert þegar ég er nývöknuð. Eða allavega þá er mér ekki vel við það. Hildur fer að hlægja að þessari sérvisku í mömmu sinni og segir einu sinni sem oftar að ég sé einum of sérvitur :)
Svo segir hún: "en þegar þú áttir kærasta, máttu þeir þá ekki kyssa þig á morgnana?" ...... Ég hugsaði, hugsaði og hugsaði..... en svarið er: ÉG MAN ÞAÐ EKKI!!! Það er s.s. orðið svo langt síðan ég vaknaði við hliðina á karlmanni að ég man ekki lengur hvernig það er!!!!! Ó mæ, við hlógum mikið þegar ég áttaði mig á þessu og komumst að því að ég væri líklega ekki AÐ pipra heldur væri ég hreinlega ORÐIN pipruð!!

Pipraðar kveðjur frá Edinborginni :)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
Gera eitthvað í málinu!
kv. sigga

10 nóvember, 2008 18:38  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey þú hefur þá allavega vitað það einhverntíman!!!!!!!!!!!!!!!

Kv Jóna Guðný piparkelling

ps.
við verðum þá kanski báðar skrítna kellingin á hæðinni sem að býr ein með 15 kétti????

10 nóvember, 2008 20:11  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig væri að reyna að komast upp undir pilsið hjá einhverjum....... Gæti verið gaman!!!

Kveðja Dísa systir

12 nóvember, 2008 08:39  
Anonymous Nafnlaus said...

kvitt og kvitt. Styð hugmynd systur þinnar um pilsakíkk.
kv. ÁGJ

12 nóvember, 2008 11:43  
Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ svona alveg málinu óviðkomandi en ég verð bara að viðurkenna það að ég er farinn að sakna tengdó smá :) þó ekki sé nema bara svona til að setja mig á minn stað svona öðru hverju :) svo fer bráðum að verða hægt að sjá efnið sem ég hef gert í skólaum á facebook... læt vita þegar það kemur.

kv. Rúturinn

15 nóvember, 2008 08:08  
Anonymous Nafnlaus said...

Úps. Gleymdi að bæta við nafnið mitt... Draumatengdasonurinn...

15 nóvember, 2008 08:09  

Skrifa ummæli

<< Home