26.10.08

Smá fréttir af okkur

Úff, það er bara pressa á mann að blogga oftar!! Jæja jæja ég skal reyna að finna eitthvað til að segja ykkur :)

Vikan sem mamma var hérna hjá okkur var yndisleg þrátt fyrir rysjótt veður. Við þrjár áttum notalegar stundir saman og skoðuðum búðir og fallega staði hérna í borginni. Mamma bauð okkur Hildi svo út að borða eitt kvöldið og fórum við á ítalskan veitingastað þar sem við fengum frábæran mat. Mamma fór svo aftur heim á fimmtudaginn og það var eins gott að hún átti ekki pantað far daginn eftir því að mér skilst að veðrið heima hafi verið þannig að meira að segja millilandaflugið raskaðist!

Hérna hefur veðrið svosem ekki verið neitt skemmtilegt undanfarið, rok og rigning en við höfum samt ekki fengið eins slæmt og þið þarna heima, að mér skilst.

Það er samt svo fyndið að vera í svona öðruvísi umhverfi en maður er vanur. Ég hugsa að þess vegna taki maður eftir alls konar litlum hlutum sem heimamönnum finnast ósköp venjulegir. T.d öll þessi laufblöð sem eru að falla (já og fjúka) af trjánum núna. Þau fjúka nefnilega í skafla eins og snjórinn og mér finnst það svo ferlega fyndið.

En að öðru. Hildi hefur ekki gengið mjög vel að aðlagast lífinu hérna. Hún á erfitt með að finna sér vini í skólanum og finnst hún hvergi passa inn í hópinn. Hún saknar mikið vinkvenna sinna heima en er sem betur fer í góðu sambandi við þær í gegnum tölvuna. Þetta hefur orðið til þess að hún er voðalega dauf dags-daglega og líður greinilega ekkert vel hérna. Ég held að þetta tengist aldrinum aðallega vegna þess að það er afskaplega erfitt að breyta alveg um umhverfi og félaga þegar maður er 14 ára. Það er ekki eins og sjálfstraustið sé að fara með mann á þeim aldri.....! En til þess að reyna að hjálpa henni í gegnum veturinn þá er ég búin að panta fyrir hana far heim um jólin. Ég fann hjá mér ferðapunkta á kreditkortinu mínu sem pössuðu akkurat fyrir fari fyrir hana fram og til baka. Fyrst pantaði ég far heim þann 14.desember og hingað út aftur þann 30.des. Það voru nefnilega allar ferðir eftir áramótin svo svakalega dýrar en þessi dagur var á góðu verði. En nokkrum dögum eftir að ég gekk frá þessari pöntun þá fékk ég mail frá Icelandair um að það væri búið að fella niður flugið þann 14. desember og einni öll önnur flug til og frá Glasgow í desember nema þann 30. Einnig að það yrði ekkert flogið til og frá Glasgow í janúar, febrúar og mars á næsta ári!!! Ég hringdi í Icelandair og sú sem ég talaði við athugaði með flug frá Manchester en það var líka búið að fella það niður í desember svo ég bað hana að athuga hvenær síðasta flug frá Glasgow yrði í nóvember og það er þann 30. nóv. Ég bara bókaði Hildi heim þá svo hún fékk þarna allt í einu heilan mánuð heima!!! Ekkert smá glöð með það stúlkan og ég er það líka hennar vegna. Hún fær að vera hjá Ólöfu systir sinni í Reykjavík þangað til þær fara saman vestur og verða hjá pabba sínum og fjölskyldu um jólin. Þannig fær hún að hitta vinkonurnar og að fara í skólann sinn í Reykjavík þangað til þær fara vestur. Ég held líka að það verði gaman fyrir þær systur að eiga saman jól í eitt skipti með Vigni og Rebekku og krökkunum þeirra, þær hafa jú alltaf verið hjá mér um jólin.

Ég verð því ein hérna í Edinborg um jólin því ég sé ekki fram á að fá neina heimsókn að heiman. Bæði vegna gengisins og þar sem þá þyrfti að fljúga í gegnum London og það er bara orðið of mikið vesen og of dýrt. Mér líst samt ekkert illa á þennan mánuð hérna ein og hvað eru ein jól á milli vina? Það koma önnur jól eftir þessi og ég er líka einhvern vegin þannig gerð að mér líkar afskaplega vel að fá að vera ein stundum, hef eiginlega bara þónokkra þörf fyrir það.

Að lokum myndir frá heimsókn mömmu, eins og sjá má þá snérist allt um það að borða ;)














4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Takk nú veit ég hvernig ég á að kvarta, hafið það gott, bæbæ.
sigga #677

26 október, 2008 22:38  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Anna, æ hvað það er sárt að heyra að Hildur nái ekki að njóta vistarinnar úti, svo það verður gott fyrir hana að koma heim og hitta vini og fjölskyldu, en það er ekki góð tilhugsun að þú verðir ein á jólunum en auðvitað mun það ganga og þú gerir örugglega það besta úr því. Gott að fá blogg frá þér og gaman að sjá hvað vikan með mömmu þinni var skemmtileg.

kv.
Idda

Idda

27 október, 2008 09:26  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl litla sys!
Þú rúllar þessu upp með jólin, ert hvort sem er bara hálfkristin....ég öfunda þig svolítið (ekki alveg) það er örugglega alveg frábært að fá að vera einn í dálítinn tíma, ég gæti alveg þegið það. Ég ætla að taka videomyndir í afmælinu fyrir vestan og af Ebbu og senda þér, þú getur þá grátið yfir þeim um hátíðirnar með vissu um að við elskum þig.
Kveðja Dísa

28 október, 2008 11:12  
Anonymous Nafnlaus said...

Skil þig mætavel.
Svo sem ekki skemmtileg tilhugsun þessi jól þegar maður er alveg einn og þá sérstaklega vegna matarins sem er kannski ekki eins flottur þegar maður eldar bara ofan í sjálfan sig. Svo gerir maður alltaf sitt besta og uppsker eftir því :)
Góð bók og kertaljós, þögnin og hvíldin er líka góð og þessi jól verða fyrirtaks friðarjól :)
Gangi þér svo áfram vel með lífið í útlöndum!
k.kv., Addý hin :)

29 október, 2008 02:44  

Skrifa ummæli

<< Home