21.11.05

Tíminn er að renna út.....!

Je-dúdda mía... það eru bara 2 vikur í skil!!!!
Thank God fyrir pizzu-tilboð, kínverskan man, tilbúna grillaða kjúklinga og fleiri skyndilausnir á matvörumarkaðinum, annars væru dætur mínar verulega vannærðar þessa dagana. Ég hef sko engan tíma til þess að elda mat á hverjum degi, hef komist upp með að gera það svona örðu hvoru og fyllt svo upp í skarðið hina dagana með junk-food. Það versta við þetta er hvað þetta er dýrt (já og fitandi maður!!).

Jæja verð að halda áfram að böggla þessari ritgerð saman. Tek það samt fram hérna að það er EKKI mér að kenna að leiðbeinandi minn er handleggsbrotinn!!!! Ég geng ekki svona nærri honum þó ég sé að deyja úr stressi....

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel á lokasprettinum, sýnist íbúðin í Blönduhlíðinni bara bíða eftir þér...

21 nóvember, 2005 22:58  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel með skilin:) Þú merjar þetta eins og þú ert vön að gera.
Gangi þér vel.

Kveðja Inda.

22 nóvember, 2005 17:19  

Skrifa ummæli

<< Home