7.10.05

Að batna

Já mér er að batna og er farin í vinnuna og skólann. Stóri bústni mallakúturinn minn er að vísu ansi aumur og þarf ég að passa vel hvað ég set ofan í hann, enda engin furða eftir átökin síðustu daga.

Annars er lítið að frétta úr þessum herbúðum, bara same old same old...

Ætla að vera dugleg að læra um helgina og á svo að hitta leiðbeinanda minn á mánudaginn til að fara yfir stöðuna.
Set kannski inn einhverjar hávísindalegar spekúleringar hérna bráðum því að ég hef hugsað mikið upp á síðkastið um lífið og tilveruna í nútíð, fortíð og framtíð.

Bless þangað til...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gott að þú ert að koma til, væntanlega orðin góð núna, litli frændi þinn, þessi sem dýrkar þig!!!!!!!!!! er með þvílíka hálsbólguna, búinn að vera heima í 3 daga sem er persónulegt met hjá mér og mínum frá skóla, guði sé lof fyrir LEGO og tölvuleiki á svona dögum.....

12 október, 2005 12:26  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ aftur, takk fyrir póstinn í gær ég skoða þetta í rólegheitum um helgina

13 október, 2005 10:59  

Skrifa ummæli

<< Home