23.9.05

Klukkuð!!

Hmm, já Magga var að klukka mig sem þýðir víst að ég á að skrifa 5 "useless" staðreyndir um sjálfa mig á blogginu mínu. Hefjum nú lesturinn:

1. Ég er afskaplega löt og elska sængina mína.
2. Ég held að ég þurfi að geta allt sjálf en finnst alveg sjálfsagt að aðrir leiti aðstoðar.
3. Mér finnst best að þrífa með Kim Larsen á fullu.
4. Ég elska fjallgöngur en er bara allt of löt til að láta verða af þeim!!
5. Ég er handavinnufíkill! (er til meðferðarúrræði við því???)


Því miður þá fáið þið ekki meira blogg í dag, þó hún systir mín sé að kvarta. Það er bara allt of mikið að gera hjá mér núna!

Bless till later...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já sumir eru meira byssí en aðrir í vinnunnni... en ég heyri bara í þér ef þú ert löt að blogga. Er annars ótrúlega upptekin við að kela við hundinn, enda er hann algjört æði.

23 september, 2005 12:39  
Blogger Anna Malfridur said...

Mundu bara eftir að kela líka við kallinn þinn systir góð svo hann verði ekki afbrýðisamur út í hundinn ;) hehehe...

24 september, 2005 18:34  
Anonymous Nafnlaus said...

sniðugt.. þetta passar allt við mig líka nema kannski Kim Larsen...

26 september, 2005 01:31  

Skrifa ummæli

<< Home